
Urtekram hefur framleitt og selt hágæða lífrænar vörur allt frá árinu 1972. Þeir eru eitt stærsta lífræna fyrirtækið á Norðurlöndum og í vöruúrvali þeirra má finna matvörur, snyrtivörur og hreinlætisvörur. Í dag býður fyrirtækið uppá u.þ.b. 1200 vöruliði og koma með nýjar vörur í hverjum mánuði. Urtekram leggur áherslu á þróun lífrænna vara sem mæta þörfum almennings hvað varðar bragð, umbúðir og verð á hverjum tíma.
Urtekram býður mjög gott úrval lífrænna Fair Trade vara.
Fair trade þýðir einfaldlega “sanngjörn viðskipti” sem miðast að því að bæta kjör framleiðenda með því að greiða þeim sanngjarnt verð fyrir hráefnið. Fyrirtækin eru einnig þátttakendur í uppbyggingu í vanþróuðum löndum, þau tryggja börnum skólagöngu og framleiðendum mannsæmandi kjör s.s. aðgengi að vatni.
Árið 1986 stofnuðu Urtekram Good Food Foundation sem er samvinnuverkefni í Tyrklandi í anda Fair Trade. Einnig vinna þeir náið með Max Havelaar samtökunum.
Heimsíða Urtekram er: www.urtekram.dk
Sýnishorn af vörum frá Urtekram:











