Fréttir

NÝTT! Granateplasafi frá Berjakompaníinu

Snemma í ágúst fáum við enn einn dýrðardrykkinn frá The Berry Company. Granateplasafar eru uppfullir af andoxunarefnum og öðrum heilsubætandi eiginleikum og smellpassa því inn í vörulínuna.

healthy people – nýtt vörumerki!

Arka er að byrja með nýjan frábæran trönuberjasafa, kemur í búðir á næstunni.

Nýtt frá Merchant Gourmet – Hollustu kornmeti

Tilbúið til notkunar; fullkomin blanda af rauðu quinoa korni, ristuðum soyaflögum og linsubaunum. Tilbúið beint úr pakkanum í salatið eða sem meðlæti með kjöti eða fiski. Einnig má hita vöruna og nota í heitt salat, súpur o.s.frv.

Nýtt frá Merchant Gourmet – Risa Couscous

Heilhveiti couscousið frá Merchant Gourmet er glæsileg viðbót við vörulínuna þeirra. Einungis tekur 7 til 9 mínútur að matreiða vöruna. Prófið að blanda couscousinu saman við sítrónusafa og ferskar kryddjurtir og nota með steikinni eða fisknum. Einnig er gott að blanda fetaosti og grænmeti við couscousið.

Nýtt frá Merchant Gourmet – Rautt og hvítt Quinoa

Merchant Gourmet hefur sett á markað blandað rautt og hvítt quinoa korn í pökkum. Varan er tilbúin til notkunar beint í salatið. Það er líka tilvalið að hita quinoað og blanda saman með grænmeti og t.d. fetaosti.

Nýjar vörur

Berry company hafa bætt tveimur frábærum tedrykkjum við vöruúrvalið sitt: Grænt te og bláber og Hvítt te og ferskjur, hressandi tedrykkir, fullir af andoxunarefnum án allra aukaefna og án viðbætts sykurs.

Arka flytur í nýtt húsnæði

Arka hefur flutt í nýtt húsnæði í Sundaborg 1. Óhætt er að segja að nýja húsnæðið henti starfseminni betur og þýðir vonandi betri þjónustu fyrir viðskiptivini okkar.